Ok vá, getiði ekki látið manninn í friði?
Hann er bara að reyna að vinna sína vinnu vel og hverjum er ekki andskotans sama hvort hann viti hver munurinn er á wallpaper og screensaver? Ég hef unnið mikið með honum og hann er bara fínasti kall, geturu líka ímyndað þér hvað það er mikið stress og vesen að undirbúa svona þætti? Mætti honum oft á tímabili klukkan 1-2 um nótt uppí 365 að klára þáttinn, svo ert þú að böggast yfir málvillu, hugsaðu aðeins útfyrir kassann sem þú býrð í, hann má vera vinsæll mín vegna, hefur engin áhrif á mitt líf og þú ættir nú bara að fá þér áhugamál fyrst þeir hafa svona svaðaleg áhrif á þitt líf.