Helvíti, skar mig áðan við rakstur. Og það ekkert smá, ég skar mig sex sinnum! Og þar af í eitt skiptið svo rosalega að ég þurfti tvö klósettpappírsblöð til að þurrka blóðið í burtu á meðan ég kláraði að raka mig.
Svo þarf ég að mæta í tíma eftir tæplega klukkustund, með þvílíka skurði á andlitinu, illa rakaður þar sem blaðið missti allt bit allt í einu og ég rétt náði að skrapa þetta í burtu það sem eftir var …
Og mig svííííður!!
Hafið þið lent í því að skera ykkur svona rosalega við rakstur?