Í skólanum í dag var forvarnafræðsla, sú 20 síðan ég byrjaði í skóla. Ekkert athugavert við það, alltílæ að láta einhvern minna mann á að áfengi er vont og allt það.
Nema það að kellingin sem héllt þetta talaði eins og hún hafi drukkið 3 vodkaflöskur á dag frá því hún byrjaði að fá tennur.
Svo í endann var hún spurð hvort hún hafi verið alki, og hún svaraði “ég…. hef aðeins 2 sinnum drukkið og það var þegar ég fékk aldur… til… að kaupa mitt… eigið áfengi!!!”
Eftir þetta langaði mig strax í áfengi til að verða ekki eins og hún.