Já, ég hef aldrei verið neinn rosalegur mjólkurdrykkjumaður, og hef því blessunarlega sloppið við öll meiriháttar bóluvandræði. Aftur á móti á ég það til að fara í smá svona mjólkurdrykkjuspree endrum og sinnum, og þá, svona einum til tveimur dögum síðar, byrja bólurnar að láta á sér kræla. Bregst ekki. Og ég á nóg af vinum sem hafa svipaðar sögur að segja.