GMG. Feginn að ég hætti þar.
En já þetta er brjálæði. Sjálfur forðast ég að fara á staði sem eru með jólaskraut svona snemma. Fyrir nokkrum árum var maður kominn með leið á jólunum um miðjan desember, í dag er maður kominn með leið á þeim í byrjun desember. Argh :/
Sniðugt að hafa sérstakar jólabúðir. Ætti að vera svoleiðis á klakanum til þess að svala þorstanum hjá þráhyggju-liðinu. Til að sleppa því svona almennt í hinum. Ég skil ekki þetta kapphlaup að byrja fyrr á hverju einasta ári. Eru verslunareigendur ekki búnir að átta sig á því að meirihluti þjóðarinnar er á móti þessu?