Bræðrafélag er líklega bara félagsskapur einhverra bræðra.
Líklega áttirðu við bræðralag :) en það er félagsskapur karlmanna sem bindast oft mjög sterkum böndum, svona eins og… bræður.
Stundum, en þó ekki alltaf, er einhver leynd yfir bræðralaginu, þannig að fáir nema þeir sem eru í því vita af því, eða hverjir eru í því.
Dæmi um bræðralag er t.d. frímúrarareglan, sem líklega er nú komin svolítið út fyrir upphaflegt bræðralag :) og svo hópar sem myndast innan hers, en slíkir hópar bindast einmitt oft mjög sterkum böndum vegna sameiginlegrar reynslu sem þeir verða fyrir - oftar en ekki eiga þeir hverjum öðrum líf að launa.
Enn eitt dæmi um bræðralag er s.k. fóstbræðralag, en skv. gamalli íslenskri (norrænni/alþjóðlegri?) hefð þá bindast menn í fóstbræðralag með því að blanda saman blóði. Þar er þá reyndar oftast um 2 aðila að ræða, en svo sem ekkert því til fyrirstöðu að fleiri geti bundist í fóstbræðralag.
Vonandi svarar þetta spurningunni, a.m.k. að hluta :)
0100100100100000011000010110110100100000010001000110000101110110011010010110010000100001