Hahahahaha! lol Mikið djöfull fílaði ég bróður minn. Alltaf kemur hann mér á óvart. En var einmitt gaurinn sem byrtist sem rappari í idolinu í kvöld og kom út með brotinn sólgleraugu. Ég horfði á þetta og sprakk af hlátri. Þvílíkur leiksigur fyrir Gísla. Hann var sá eini sem var mest áberandi í kvöld og var bara mjög fyndinn rappari. Brandararnir voru þvílíkt fyndið að ég datt næstum úr stólnum af hlátri. En já því miður svona fór það. Rapparar eru ekki velkomnir í þessa keppni greinilega. Þetta var auðvitað bara djók í honum enda mikill djókari eins og ég. Því miður gat ég ekki verið með sökum aldri. Reyndar langar mig ekkert sérstaklega að taka þátt í þessu Idoli.

En ég hafði þvílíkt gaman af þessum þætti sem var í kvöld.

Endilega segið mér ykkar álit hvað ykkur fannst um þennan Idol þátt sem var í kvöld 30 sepember.