hvernig er hægt að dæma barn sem barnaníðing?
og hvað þá til fjölda ára.
Voru þeir ekki annars á svipuðum strákarnir?
Maður verður reiður lesa um svona villimennsku.
Hef lent í svipuðu, en sem betur fer gerðist
á það íslandi þegar ég var krakki (sirka 9 ára).
Þá voru það kanar sem voru með benda fingrum sínum
að mér, en ég og sonur þeirra, sem var 8 ára vorum
vinir. Móðir hans kom eitt sinn til að ná í strákinn
í mat og ég svaraði dyrunum og hann fór heim.
Síðan 20 min seinn kemur pabbi hans og biður mig
að koma heim til þeirra og þau spurja mig og horfa
gífurlega alvarlegum augum HVAÐ VORU ÞIÐ AÐ GERA?!!
og ég nátturlega vissi EKKERT hvað var á seiði
og sagði bara sannleikann, að við vorum að spila
tölvuleiki. Og mamma hans spurði hvort að maður
þyrfti að vera ber á ofan til þess…
Ég var nefnilega ekki í bol þegar ég ansaði dyrunum, eins og það sé eitthvað óeðlilegt…
Og þetta tók svona 20 min, þau að
spurja um hvað við vorum að gera. Síðan FÉKK
ég að fara heim loksins, þegar ég og strákurinn
sannfærðum þau (held ég) að við vorum ekki að gera
neitt sem við ættum ekki að gera.
Ég held að ég hafi
aldrei verið jafn ringlaður og þá, og jafnvel
hræddur,
Mér leið hræðilega.
Svo áttaði ég mig á hvað var á seiði mörgum
árum seinna. Sick sick fólk…