Ég ætla að leyfa mér að nöldra aðeins… Þið sem hafið engan áhuga, sleppið því að commenta…
Nöldu 1. Bakið mitt er í vondu skapi. Ég er með hausverk í bakinu! alltaf! Nema þegar íbúfenið virkar… *andavarp* Vöðvabólgan… urr…
Nöldur 2. “Ég skil ekki hvað þú ert að meina,” segi ég sakleysislega við stærðfræðikennarann. “Jú, víst, þú skilur…” svarar stærðfræðikennarinn um hæl…
Halló! Ef ég segist ekki skilja, ekki segja þá að ég skilji því að það er ég sem skil ekki en ekki þú! HAta þessa manneskju! Hún vill skipuleggja ALLT fyrir mann! Ég HATA þegar fólk fer að riðlast í mínu skipulagi. Ugr… Má ég drepa hana?
Nöldur 3. Fólk sem er með -4 eða minna: það sér ekki illa! Þoli ekki þegar fólk er að kvarta yfir því hvað þð er nærsýnt, og svo kemst maður að því að það er bara með -3, -4… “Já, ég er nánast blind án glerauga,” segir það. Blint my ass….
Nöldur 4. Stól og borð í skólanum mínum eru ekki hannað fyrir manenskjur sem eru undir 190:( Þessi borð eru svona 120 cm á hæð! maður þarf að sitja langt yfir sjávarmáli til þess að geta náð upp í borðið! Skapar vöðvabólgu… Ég gæti alveg eins staðið við þess borð og setið, svo hávaxin eru þau.
Nölur 5. Bækur sem eru það illa skrifaðar að þær eru eyðsla á regnskógunu… Common, hver vill lesa um einhverja sveitastelpu sem á sér ekkert líf? Ekkert plott, ekkert gerist. Karektarnir óspennandi, umhverfið sveitir englands..
Mitt nöldur- Leyfið mér að eiga það í friði.