Heimasíða Gísla Marteins er í bígerð. Slóðin mun bera heitið www.gislitheman.is og mun innihalda meðal annars blogg frá manninum sjálfum, spjallrás þar sem aðdáeindur hans geta talað saman um hitt og þetta, umræðusíður (messageboards) þar sem aðdáendur hans tala saman um ýmis málefni, og svo verður líka opinn aðdáendapóstur sem Gísli mun svara tvisvar í viku. Fyrstu fimm sem fá pósti sínum svarað frá Gísla, fá ókeypis bol með Gísla í skærbleikum spandexgalla framaná, frisbídisk með andliti Gísla á, og síðast en ekki síst dagatal þar sem má finna myndir af Gísla í ýmsum kynæsandi stellingum, þar sem hann er að auglýsa nýjustu gerðina af Speedo sundskýlunum með streng.