Uhm… Hmmm… Takkaskó, vinnuskó og venjulega skó… Og íþróttaskó… Jamm…
Einu sinni var ég á útihátíð, fór inní tjald, fór þá úr skónum, fór út aftur, þar var bara eitt par af skóm sem ég var viss um að væri ekki mitt par, ég leitaði í 10 mín að mínum skóm áður en ég mátaði skóna sem ég var viss um að ég ætti ekki og þeir smellpössuðu. Enginn saknaði skópars þannig að líklegast á ég parið en ég get ómögulega munað eftir að hafa notað þetta skópar fyrir þessa útihátíð. Samt segir fólk mér að þetta sé parið sem ég var í alltaf… Dularfullt…