Af því ég lýt á heildarmyndina og dæmi það eftir því hvað ég tel Írökum vera fyrir bestu. Óháð áliti mínu á Bandaríkjamönnum.
Rúmar 25 milljónir manna búa í landinu. Þúsundir hafa dáið og er það auðvitað stór fórn, fórn sem Evrópumenn ættu að þekkja. En hagur 25 milljóna manna er mikilvægari en þeirra þúsunda sem féllu. Saddam drap líka þúsundir á hverju ári og því er ástandið varla verra en þegar hann var við völd. Uppreisnarmennirnir bera líka ábyrgð á meirihluta þeirra sem hafa fallið, ekki Bandaríkjamenn. Þetta er aðallega uppreisn Súnní múslima sem eru að berjast fyrir eigin hagsmuni, en ekki hagsmuni Íraks í heildina. Í raun bara framhald af illverkjum einræðisins. Írakar eiga skilið frelsi frá minnihlutanum.