Þú ættir örugglega að geta séð það fyrir sjálfan þig, veit samt ekkert um þetta.
En fyrst þú stalst bara bland í poka, þá ættirðu ekkert að fara á sakaskrá fyrir það…
Annars er ég með eina sögu sem gerðist í febrúar árið 2004:
Það var þannig að tveir strákar sem ég kannast við, var með þeim í bekk, ákváðu einn daginn að' þeir vildu fá Subway.
Þeir fóru niður í kringlu, og í banka þar. Þar gerðu þeir tilraun til að ræna bankann, og “vopnið” sem þeir notuðu til verksins, var mjög óvenjulegt, því að þeir notuðu ósköp venjulega hárgreiðu :}
Bankaránið tókst ekki, svo að þeir fóru á Subway, og reyndu að ræna það, sem tókst ekki heldur.
Svo kom löggan, þeir fóru heim með henni, þetta varð voða mál, og uppfrá þessu er greiðan þeirra geymd hjá lögreglunni í lokuðum poka sem sönnunargagn A.
Ég veit eigi hvort þeir komust á sakaskrá, þar sem þeir voru bara í 8. bekk.
Ástæðan fyrir því að ég var að segja þessa sögu er sú að það voru einhverjir hér að ofan að segja glæpasögur, og mér fannst ég verða að segja þessa :}