Hvað segið þið hugarar um það að þið hættið að senda inn korka og greinar og álit, en leyfið mér hinsvegar bara að halda þessari síðu gangandi, með því að einoka öll umræðuefnin þar sem ég sendi inn greinar og sendi sjálfum mér c.a 100 álit við því.
Væri ekki æðislegt ef allir væru eins og ég, þar sem engin skítköst eða þá nöldur eða vanþekking væri til, heldur bara 100% sannleikur í öllu því sem maður les.
Þess vegna get ég ekki neytt ykkur að hætta að senda inn greinar, korka og álit, heldur verðið þið að ákveða það sjálf í frjálsum vilja. Látum þess vegna hjartað ráða og gerum það sem samviskan segir okkur, for the greater good.
Hvað varðar stjórnendurna og JReykdal þá skora ég á ykkur að leyfa mér að eiga huga.is og reka hana sjálfur, og gefið mér bara eina viku í tilraunaskyni og ég lofa ykkur því að ég mun skila tíföldum hagnaði og aðsókn, þannig að það mun ekki líða á löngu þangað til allar fréttastofur á heiminum berjast við það að kaupa síðuna á mokfjár, svo að ég, munnur hreinskilninngar og viskunnar, geti verið fulltrúi þeirra í fréttaflutningi og skoðunum á heimsástandinu.