Mér finnst þetta lýsa dálítið hugarfari þínu Chemical. Það er greinilegt að þú ert eitthvað óöruggur með sjálfstraustið, þú gerir lítið úr öðrum til þess eins að fegra sjálfan þig.
Veistu hvað, þetta særir mig ekkert ef þú heldur það. Ég er 21 árs og hef fengið minn skammt af gagnrýni, ósanngjarni og sanngjarni, óþroskaðri og þroskaðri, og þetta er ein óþroskuð gagnrýni sem er bjánaleg.
Ég hitti Clint og spjallaði við hann, fékk mynd með honum og er að sjálfsögðu hæstánægður með það. Hefðir þú ekki sagt frá því líka?? Ég er nokkuð viss um að ALLIR hér inn á huga hefðu sagt frá því.
Þú ert kannski öðruvísi, enda reynirðu að líta út fyrir að vera eitilharður töffari þó ég efist um að þú sért það.
Lífið gengur út á að vera númer 1, ekki númer 2.