Skil vel að þú fáir hausverk, mér verður alltaf illt í svona 2-3 daga eftir strekkingu en núna, eftir 4 ár og 4 mánuði með þetta helvíti í kjaftinum, er ég farin að venjast píningunni og er fljótari að jafna mig eftir strekkingar. En ég er nú að fara að losna við þetta eftir 1 og hálfa viku þannig ég hlakka nánast til að fara til tannsa í fyrramálið!!
En það er ekkert að óttast, hausverkur er alveg skiljanlegur eftir strekkingu. Ef manni er illt einhversstaðar (tönnunum í þessu tilviki) fylgir oft hausverkur með.