Ég var á 17. júní með vinum mínum að skemmta mér, svo allt í einu sé ég að allir byrja að hlaupa. Ég vissi ekkert hvað var að gerast svo að ég spurði fullt af fólki en enginn virtist vita af hverju þeir voru að hlaupa. Seinna fattaði ég að það var verið að elta innflytjanda frá Asíu sem að mér virtist ekkert hafa gert. Svo sé ég að hann er kýldur og löggan tekur hann í burtu. Þarna voru allavega 20 manns sem hefðu gert eitthvað ef ekki fleiri. Hugsiði aðeins um hvað þetta er óþroskað að vera sona 100 að elta 1. Ég veit að það hefði ekki helmingurinn gert eitthvað en samt. Það var 1 sem ég sá að var að reyna að hjálpa honum. Og hann var barinn. Hvað af hverju getur fólk ekki skemmt sér án þess að vera að berja einhvern. Svo er líka alltaf verið að bögga þessa Taílendinga og auðvitað svara þeir fyrir sig.
Reyniði að þroskast aðeins
Daywalke