Ég verð að viðurkenna að ég varð fyrir vonbrigðum með nýjan Huga, litirnir á forsíðunni hræðilegir og ekki lengur hægt að fara hvert sem er innan huga með einum smelli.

Svo stækkaði ég gluggann minn úr c.a. 800 á breidd í 1024 og allt fór á ferð og aflagaðist. A:Hover á nokkrum síðum fær tengilinn til að hverfa, angrar mig ekki mikið, en samt…

Svo ætlaði ég að skoða póstinn minn… Lýst er eftir tengli á póst, síðast sást til hans rétt fyrir klukkan fimm í dag.

Það er mjög margt í nýju útliti til bóta en betur má ef duga skal.
Skoðanir Octavo eru hans eigin og gætu því stangast á við skoðanir annarra á Huga. Þér er velkomið að: