Af hverju er alltaf verið að eyða korkunum mínum? Hvað hafa korkar annara fram yfir mína korka?
Það var nú nógu slæmt síðasta laugardag þegar ég var settur í bann í viku fyrir korkinn ,,krossferð gegn samkynhneigð´´ og hinn korkinn sem ég ætla ekki að nefna vegna virðingar við samkynhneigða.
Þannig að plís geta stjórnendur komið með einhverjar rökréttar skýringar á þessu öllu saman. Ég meina, eins og ,,krossferð gegn samkynhneigð´´ korkurinn var kominn með 150 álit á fimm tímum svo að þetta var ein heitasta umræðuefni, og mun áhugaverðara heldur en flest öll hin umræðuefnin á huga.is.
Ég hélt að hugi.is væri staður þar sem fólk gæti komið skoðunum sínum á framfæri án þess að mæta fordómum annara, og það ríkir málfrelsi á íslandi svo að við notendur eigum öll þann rétt að vera hreinskilin um allt milli himins og jarðar.