Halló öll. Þar sem ég er að vinna á Vísindavefnum langar mig gjarnan að vita hvað fólki finnst um hann og hvað megi fara betur. Endilega komið með komment og uppástungur um betrumbætur.
Það er ótrúlega misjafnt. Við fáum svo gríðarlega margar spurningar að sumum verður líklega aldrei svarað. Þegar bíða um 17.000 spurningar svars :-O
Hverju er svarað fer eftir ýmsu, til að mynda hvort við vitum um einhvern sérfræðing í því sem spurt er um, hvort það sem spurt er um sé mikið á döfinni þá stundina og hvort margir spyrji um það sama.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..