nei ég er ekki bróðir hennar og ég er ekki að verja þáttinn heldur er ég að verja leikkonuna, ég þekki hana ekki neitt og þú ekki heldur þannig að þú hefur enga ástæðu til að vera að segja svona hluti um hana. Þegar ég gagnrýni mann eins og George Bush þá er ég ekki að gagnrýna persónu hans, ég er ekki að tala illa um hann sjálfann eða segja hluti sem gætu sært hann heldur er ég að gagnrýna það sem hann stendur fyrir, stefnunum hans í stjórnmálunum.
Ég þekki Bush ekkert en ég veit hvað hann hefur verið að gera í pólitíkinni og ég er mótfallinn því, þú talar illa um þessa leikkonu kallar han nöfnum þegar það eina sem þú veist af henni er það að hún er að leika þessa úber-böggandi gelgju í þætti sem þú hatar OG HVAÐ MEÐ ÞAÐ, ÞETTA ER BARA SJÓNVARPSÞÁTTUR, hún er ekki þessa úber-böggandi gelgja, karakterinn sem hún leikur er það.
Þessir þættir eru ekki hugsaðir sem eitthvað stórbrotið sjónvarpsefni í von um að breyta lífssýn áhorfandans heldur sem sakleysisleg skemmtun.
Allir hafa mismunandi húmor (einsog ég sagði áður) og þessi þáttur er ekki að höfða til þín, afhverju þarftu þá að fara að dæma alla sem finnst þessi þáttur fyndinn ? Það er enginn verri maður fyrir það.