DV er ekki einu sinni gjaldgengt sem klósettpappír, ömurlegasta blað sem nokkurn tíman hefur verið gefið út, það er alltaf eitt eintak upp í vinnu og maður kíkir nú oftast í það og það er eiginlega bara fyndið, ömurlegar greinar, lélegir “blaðamenn”, aldrei traustar heimildir, engar teiknimyndasögur (viðurkenið það, teiknimyndasögurnar eru uppistaða blaðsins), síðan er blaðið ekki lesið yfir áður en það er sent í prentun, hef fundið huundruðir stafsetningar, staðreyndar og málfarsvillna í þessu sorp“blaði”.
Ég veit ekki um neinar hreinar lygar sem þeir hafa komið með en þeir ýkja svo og eru mjög hlutdrægir, taka eina hlið málsins og eru yfirhöfuð lélegir pennar upp til hópa.
Ef ég á að taka dæmi um lélegheit þessa blaðs þá dettur mér fyrst í hug dálítið sem ég las á íþróttasíðunum fyrir tæpri viku eða svo,
á íþróttsíðunni voru tvær greinar, ein þeirra fjallaði um að Aston Villa væri að fara að kaupa Craig Bellamy, þar stóð að Bellamy hafði staðið sig vel hjá Celtic sem nýlega var skoskur meistari! í grein á sömu síðu var síðan stærri grein um að Rangers hefði orðið skoskur meistari, ég meina hvernig er hægt að taka ekki eftir þessu, að skrifa að Celtic sé skoskur meistari og á hinni síðunni er ýtarleg grein um skoska boltan þar sem fyrirsögnin er “Rangers er skoskur meistar” (eða eitthvað svoleiðis, man þetta ekki alveg), það er nú alveg sjálfsagður hlutur að prófarkalesa blað áður en það fer í prentun en þeir hjá DV virðast vera alveg sama um það. Þetta blað er sorp og er svartur blettur á íslensku samfélagi sem og öllum fjölmiðlum í heimi, þetta blað ætti að banna pg það ætti að vera löngu búið að kæra ritsjóran og blaðamennina fyrir meiðyrði og lygar um fólk, þú skalt ekki vona að þú komir í þessu “blaði” því þeir taka orðstír þinn og mölva hann í öreindir, djöfull hata ég þetta ógeðslega “blað”.