Faraldur hefur geisað um hugi.is - sem er stærsti umræðuvefur miðaldra karlmanna á Íslandi - svo virðist sem að notendur hafi gengið að göflunum og hreytt út úr sér öllum fjandanum, gert gis af stjórnendum og dansað vals við hiphop.

Við frekari rannsókn kom í ljós að hakkari hafði heimsótt þessa notendur og gert þá geðveika með því að dreifa kjöthakki út um allar trissur.

Eitt fórnarlambanna (fyrir utan þau sem voru í hakkinu) var Leifur II Ansjóví fursti, aðspurður um atvikið sagði hann: “Ég hef aldrei séð jafn mikið hakk á ævi minni, fyrst raðaði hann því upp í abstrakt skúlptúr og gerði svo litlar lummur úr þeim, ég held það sé kallað hamborgir venjulega, en allavega þá hélt hann þessu áfram og dældi inn meira og meira hakki, ég vaknaði fjórum stundum síðar á sjúkrahúsi”.

Svo virðist sem að hakkarinn hafi ótakmarkaðar birgðir af hakki því hann hélt linnulaust út mánuðinn og fórnarlömbin urðu æ fleiri. Ýmislegt bendir til að hann hafi sambönd við SS, sem hefur verið í slátur bransanum frá því rétt fyrir WWII, öryggisfræðingur okkar á kjötiðnaðarsviði segir að allt bendi til þess að um sé að ræða hakk frá SS.

Á meðan hakkarinn gengur laus hefur mikil ókyrrð myndast í samfélagi hugara, nokkrar samsæriskenningar hafa sprottið upp úr þessum hræringi og meðal annars hefur heyrst að JReykdal sé í slagtogi við G.W. Bush og að þeir séu að valda ógn og skelfingu viljandi til að auðvelda lýðstjórn og heilaþvætti með flash-auglýsingum. JReykdal vildi ekki svara spurningum um þetta mál fyrr í vikunni.

Þangað til að hakkarinn finnst er fólki ráðlagt að halda sig við grænmeti.

Við munum halda áfram með þessa frétt um leið og frekari upplýsingar berast, þetta er Damphir fyrir óháða og ómerkilega fréttastöð huga.is, blessbless.