Nr. 1: megadethfan er í banni.
Nr. 2: Þegar hakkað var inn á mig játaði hakkarinn að hann væri að hakka og að hann væri í banni.
Nr. 3: Hakkarinn skildi eftir sig eitthvað sem bent gæti til þess að hugarinn tjodalv væri að
gera þetta. Hugarinn tjodalv er, og ég er 100% viss, vinur megadethfan í real-life.
Nr. 4: Eftir að hafa séð póst eftir magnus119 á /hiphop áhugamálinu nýlega varð ég pottþéttur. Þar var m.a. sagt:
“megadethfan” (sem núna er í banni;( ) gerði einu sinni kork sem stóð í að rapp væri ekki tónlist og allir virtust sammála honum.
Nr. 5: Þegar verið var að hakka inn á mig var bæði skrifað inn á /metall í mínu nafni og sagt oftar en einu sinni held ég að rapparar mættu allir brenna í helvíti, þó að þetta sé líklegast ekki rétt tilvitnun hjá mér. Þetta var svipað.
Nr. 6: Þegar allt þetta er lagt saman finnst mér vera yfirgnæfandi líkur á að þetta hafi verið megadethfan sem braust inn á mig og magnus119. Hins vegar þá er ég ekki viss um þetta með omaromar. Það kemur í ljós þegar meira verður sagt.
Svona er stundum gott að hafa gott lesminni…. Maður getur leyst ýmislegt á engum tíma.