Mér líst með eindæmum vel á það sem þú ert að gera með þessum korki. Augljóslega eiga allir sem eiga afmæli að fá tækifæri til þess að stofna nýjan póst með tilkynningu um það. Þetta lífgar upp á umræðuna og kemur öllum í afmælisskap, þ.e. gott skap. Nú eru skráðir notendur Huga vel á þriðja tug þúsunda, sem þýðir að u.þ.b. 82 að meðaltali eiga afmæli á hverjum degi. Fyrir mitt leiti verð ég að segja að það er fátt sem kemur mér í betra skap en slíkt korkaflóð.
Það verður t.d. áhugavert að rekast á afmælistilkynningar allar hinna 118 Magnúsanna.