skarplega athugað hjá haukza.
þetta með að vera alveg sama átti að vera aukaatriði, bara svona upp á flippið. það hefði kannski átt að koma á eftir atriðinu um staðsetninguna, ég veit það svo sem ekki.
af hverju ætti ég að sleppa því að kíkja ef þetta tengist knattspyrnu? ég var ekkert að atast út í knattspyrnu, mér er bara slétt sama hver á eitthvert lið sem skiptir mig engu máli.
yfirleitt kommenta ég ekki á neitt á huga yfir höfuð, þannig að þú þarft ekki að hafa áhyggjur af því að þetta gerist aftur. auk þess má ég alveg lýsa yfir skoðun minni á málinu, er það ekki tilgangurinn með kommentum? nema þú sért á þeirri skoðun að skoðanir séu óþarfar og skipulögð ritskoðun með tilheyrandi lögregluríki eigi tilverurétt. frekar þversagnakennt að vera á þeirri skoðun, ef við gerum ráð fyrir að þér finnist það.