Vissulega er það rétt. :)
Hugi er náttúrulega fjármagnaður með auglýsingum sem eru seldar útá okkur, en gefur það okkur rétt til að vera með dónaskap og heimta eitthvað?
Ég yrði mun sáttari ef einhver myndi stinga uppá edit takka sem virkaði þannig að maður bætti í rauninni við skilaboðin frekar en að breyta þeim.
Segjum sem svo að þannig edit takki væri í notkun núna og ég hefði editað þessu svari þá kæmi það einhvernvegin svona út.
Síðast breytt 11. maí 2005, kl. 14:26:14, af notanda/Duff
Og hérna kæmi það sem ég bætti við. :)
Þessi hugmynd um edit-takka (reyndar ekki sú sem ég var að koma með núna) hefur komið fram oft og ég er þónokkuð viss um að Reykdal hafi séð hana.
Ef hann er að vinna í henni þá er hún á leiðinni, ef hann er ekki að vinna í henni þá líst honum eflaust bara ekkert á þetta. :)
Annars veit ég það ekki …
Kv. Duff ;)