Ég get ekki sagt að mér hafi fundist þetta skítlétt… Var í vandræðum með nokkrar spurningar, fannst dúkkutextinn erfiðastur. Var örugglega um hálftíma með hann, var ekkert að fatta um hvað hann var fyrr en ég var hálfnuð með söguna.
Ritunin var samt létt, bara svo lítið að gerast í sögunni þannig þetta varð frekar ómerkileg saga hjá mér… En ég er nefnilega vön að skrifa í það minnsta 150 orð í gömlum ritunarverkefnum, þannig það var kannski bara ágætt að það var svona lítið að skrifa um núna. Þetta urðu eitthvað um 110 orð hjá mér.