Hahaha mér finnst þetta líka nördalegt en ég geri það samt. Ég er svo vanur að gera það á internetinu, og eins og gaurinn fyrir ofan mig sagði, ég nota það þegar ég nenni ekki að hlæja að einhverju þótt mér finnst það fyndið.
hahaha það er bara svo fáránlega asnalegt að segja þetta í raunveruleikanum! :D vinur minn gerir það, síðast þegar ég vissi, og vinkona mín gerði það einu sinni alltaf.. mér finnst það svo hallærislegt því það er ekki erfitt að hlæja.. hehe :) annars fer þetta ekkert í taugarnar á mér það mikið.. mér finnst þetta aðallega asnalegt.. :)
Ef það er eitthvað sem ég hata þá er það svona tal, LOL og svo framvegis, þetta er svo barnalegt og fáranlegt eitthvað að það er ekki eðlilegt, sumir kunna ekki einu sinni að hlæja lengur segja bara átómatískt LOL þegar þeir heyra eitthvað fyndið.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..