Þið viljið sögur…
Ég er hjá honum sex tíma á viku. Hann kallar leiðindanema ljóta. d: Ljótur, vaknaðu! Ef tveir eru að tala saman kallar hann þá Ljótan eitt og Ljótan tvö.
Hann á kött sem heitir Kismundur Junior. Hann heldur kanínur og fugla, ekki fyrir sig, heldur köttinn. Snilld.
Hann hefur líka húmor fyrir sjálfum sér. Hann er í breiðari kantinum en segist alltaf vera í frábæru formi. Þið hlæið kannski ekki núna en þetta er viðbjóðslega fyndið í tíma.
Ég er að minnsta kosti með þannig krökkum í tíma að enginn annar en hann gæti haldið tímanum í gangi.
Varðandi forsetaframboð: Ég held að hann sé í Framsóknarflokknum og hafi einhvern tímann verið í sæti þar fyrir einhverjar kosningar. Þannig að hann hefur reynsluna og óneitanlega kjörþokkann.
Ég á örugglega eftir að sakna hans þegar ég hætti í Réttó. Áfram Óðinn!