Ég hitti eina stelpu á balli sem var haldið í henanr skóla og við byrjuðum að tala saman og í lok ballsins fékk hún númerið mitt og svona. Við töluðumst saman í gegnum síma nokkrum sinnum í viku og hún sendi mér stundum sms og var alltaf að spurja hverri ég væri hrifinn af og svoleiðis.
Svo fljótlega eftir það spurði hún hvort ég kæmi í sund og svona ofl. og við fórum í sund og allt í fína.
Svo síðar ákvað ég að bjóða henni í bíó, hringdi í hana og spurði hvort hún kæmi í bíó um helgina og hún var meira en til í það.
Svo um helgina talaði ég við hana og spurði hvort það væri ekki bíó í kvöld og hvaða mynd hún vildi fara á, hún ákvað mynd og við ákvöðum að fara kl 10.
Svo um 8 leitið senti hún mér sms og spurði hvort “jón” mætti koma með, ég vildi náttúrulega ekki vera dónalegur og sagði “já” en spurði svo:
“hver er jón?”
Og þá svaraði hún: “kærastinn minn, erum búin að vera saman í 3 mánuði”

Hehe, svo fórum við öll þrjú saman í bíó sem var helvíti vandræðalegt.

—————————-

Svo í annað skipti var ég staddur á smátónleikum í bænum og sá stelpu sem ég þekkti og einhverja aðra síðhærða ljósku sem lá í fanginu hennar. Ég byrjaði eitthvað að tala við hana og og stuttu seinna spurði ég hvort ég mætti ekki bjóða henni og vinkonu hennar upp á eitthvað.
Og þá leit “vinkona” og sagði með karlmannslegri röddu “jújú, ég er til í eitthvað”… Og þá var þetta strákur sem hún var eitthvað með.
Ég héllt náttúrulega “kúlinu” og bauð þeim upp á eitthvað að drekka og var ekki lengi að forða mér þaðan.

—————————-

Svo gerðist fyrir stuttu að ég kynntist stelpu. Við byrjuðum að tala eitthvað á msn og urðum ágætis vinir. Ég spurði svo hvort hún vildi ekki hitta mig og hún var til í það og bað mig að koma um kvöldið. Svo um daginn var vinkona mín að rífast við mig og varð mjög sár útaf einhverju og við lentum í miklu rifrildi. Svo um kvöldið var ég á leið til hinnar stelpunnar og þá spurði hún hvort vinkona hennar mætti ekki vera með okkur, ég var alveg til í það og hugsaði “því fleiri því betri”.
Svo bankaði ég á dyrnar og fór inn til hennar en sá þá vinkonu mína í sófanum, augljóslega nýbúin að gráta.
Þetta var mjög vandræðalegt kvöld fyrir okkur 3 en við sættumst svo í endann og leigðum okkur svo spólu.
—————————-

Þetta er svona eina sem ég man eftir, enda er ég oft minntur á þetta og gert grín að mér útaf þessu. En það er bara gott mál :)

Hvað hefur gerst við ykkur?