Þetta er þýsk mynd. Hitler var alls ekki gerður of mannlegur í myndinni eins og fólk segir heldur og finnst hún þess vegna röng. Myndin er MJÖG raunsæ og sýnir Hitler ekki sem djöfulinn sjálfan eins og allar myndir sem fjalla um seinni heimstyrjöldina og nasisma. Það er ekkert reynt að vekja samúð með honum, það er sýnt hversu ruglaður hann var orðinn og hversu brenglaðar hugmyndir hann hafði og ekki bara sagt “Hitler er vondi kall sem drepur alla gyðinga” og þess vegna er fólk svona pirrað, það neitar að horfast í augu við raunveruleikan. Þetta er líka stórt skref fyrir Þjóðverja að horfast í augu við þetta því seinni heimstyrjöldin er alls ekki eins tabú og hún var þó hún sé ennþá viðkvæmur blettur á þjóðarsál þeirra.