Jæja, hugi hefur loksins tilgang aftur. Að safna saman mestu hálfvitum og bældum íslendingum, sem voru ef til vill alnir upp við dekrun og kæruleysi, og gefa þeim rödd á netinu undir viðurnefni. Með því að gera svo, hafa þeir loks það hugrekki sem þá skorti til að hysju upp um sig buxurnar og ópa, væla og öskra um alla þá hluti sem þeir þykjast hata í þeim tilgangi að vekja á sér mikið þurfta athygli sem þeir fengu aldrei sem börn, eða í flestum tilfellum “hafa aldrei fengið” þar sem að þeir búa heima hjá foreldrum sem gefa þeim mat og aðra góða hluti til þess að þurfa ekki að sinna þeim.
Hér í þessum þræði hafa sem allra flestir sýnt fram á að þeir eru slíkir sem talað er um að ofan. En sannleikurinn er sá, að þið eruð ragir, þið þorið engu þegar sá sem þið reynið að espa veit hver þið eruð. Í björtu dagsljósi, mynduð þið aldrei fá jafn bjánalegar hugmyndir eins og að hoppa um vælandi og öskra að næsta manni “Ég hata grjón og nörda!” En hvað sá maður yrði hissa á þessum vangefna og óþroskaða einstaklingi. Ef til vill myndi hann hefa honum nokkrar krónur til að halda sig fjarri honum.
En internetið hefur hefur einnig gefið ykkur nafn “Tröll”.
Hættið endilega að trölllast, þið sóið tíma ykkar og öllum er í raun sama, fyrir utan þá sem ekki standast mátið og þurfa að svara ykkur til þess að reyna að sanna eitthvað sem skiptir í raun engu máli.
Ég held ég hætti að dissa illa-uppölna partinn af þjóðinni núna og leyfi henni að melta það sem ég hef sagt… þó að í raun ég viti að samstundis muni þeir svara og væla meira.
Þess vegna þætti mér gott ef þeir sem eru enn viti bornir og lesa þennann þráð, myndu temja sig og ekki svara neinu sem þessi Tröll segja svo að þau fari nú endanlega í burtu.
Takk fyrir og Góða nótt.