Þessi spurning er fáranleg þar sem það er svo augljóst að það þarf ekki einu sinni að nefna það. (sem að einmitt enginn gerir, nefna allir bara næst-uppáhalds hugara sinn því hitt er bara almenn vitneskja)
En ég ætla samt að koma því á framfæri að ykkar stuðningur er vel metinn og að aðdáun ykkar og ást gagnvart mér snertir mig djúpt.
Ég veit að mörg ykkar hafa oft velt því fyrir ykkur hvernig í ósköpunum ég get verið svona frábær. En það er erfitt að útskýra það, svona eru hlutirnir bara, æðri öfl virðast bara hafa ákveðið að setja mig á þessa jörð til þess að gera þessa annars aumkunnarverðu tilveru ykkar virði þess að lifa með mikilfengleika mínum.
Og það geri ég með glöðu geði, að geta hjálpað svona til finnst mér líka mjög mikilvægt, enda alveg hrikalega góðhjartaður.
Ég veit líka að mörg ykkar eru núna að springa úr gleði og spenningi yfir því að ég hafi komið með þetta dásamlega svar við þessum korki, og ég samgleðst ykkur.
Og aðrir sem eru enn óvanir dýrð minni geta orðið órólegir og það getur brotist út á neikvæðan hátt sem þið bara ráðið ekki við, engar áhyggjur, ég mun ekki hata ykkur. Þetta eru eðlileg viðbrögð hjá fólki sem er enn vant hinni meðalmanneskju en ekki einhverjum jafn undursamlegum og mér.
Ég kveð ykkur að sinni, en ekki fyllast af sorg, því ég mun koma aftur, kæru hugarar.