vá hvað öryggisverðirnir í miðaröðinni í smáralind voru pirrandi ( miðasölunni á Iron Maiden)
Í fyrstu mátti maður ekki einusinni fara á klósettið án þess að þurfa að fara aftast í röðina sem var mjög slæmt fyrir mig af því ég var geðveikt framarlega.
Síðan fékk maður loksins að fara á klóstið og aftur á sinn stað í röðina en þá þurfti maður að biðja þá um leyfi
Svo sérstaklega var pirrandi þegar þeir voru alltaf að kalla BAKKA á mínútufresti og þeir voru bara alltaf með bögg.
Samt fannst mér ömurlegast af öllu þegar stelpan sem mætti klukkan 9 á laugardagsmorgun var rekin aftast af því að hún var aðeins fyrir utan helvítis línuna sem þeir voru búnir að búa til.
það eina góða við þessa öryggisverði var samt að það var ekki allt í klessu þarna inni..