Þú lýturð á hugi.is sem einhvern sjálfsagðan hlut.
Þú talar um JReykdal eins og hann sé einhver einræðisherra í landi sem fáir kannast við.
Hugi.is eru forréttindi.
JReykdal er ráðinn til þess að sjá um Huga af símanum sem rekur þessa síðu. Hann var ábyggilega ráðinn vegna hæfileika hans á þessu sviði.
Ef hann sér eitthvað fólk, sem hagar sig eins og 5 ára leikskólabörn á huga. Með tilgangslausa og leiðinlega pósta sem enginn hefur áhuga á. Póstar sem eru óþarfir í gagnagrunn huga. Þá er sjálfsagt að hann banni þá notendur.
Og það að hluti fólksins sem var bannað án þess að hafa lesið póstinn hans… Hann er ekki skyggn. Hann er mannvera með 2 lappir, 2 hendur, 2 eyru, 2 augu, nef og munn. Ekkert frábrugðinn okkur hinum.