Þú minnir mig á systur mína og vinkonur hennar. Þær halda að þær séu svo fullorðnar og þroskaðar (þær eru 13 og 14.
Fyrir nokkrum mánuðum hlustuðu þær allar á FM95,7 og sögðu að rokk væri ömurlegt. Svo kom ný stelpa í bekkinn og þá fóru þær að hlusta á Manson, Slipknot og þ.h. og fóru að ganga í svörtum fötum með gaddabelti og gaddaarmbönd. En mesta snilldin er að systir mín sagði mér að hún hefði uppgötvað Metallica og að nú væri hún rokkari.
Það sem ég á við er það að litlar gelgjur eru hræsnarar með mikilmennskubrjálæði og ofmat á eigin þroska. Þær eru eins og rollur og fylgja yfirleitt þeirri frekustu.
Bauksi
“Og hana nú” sagði graða hænan.