Eða sko… hulstrið er þannig að hann er úr tré… en það er fan þátturinn
OG AFHVERJU Í FJANDANUM VIRKAR ÞETTA FOKKING NET ALDREI!!!!
og meðan ég man… hvernig líst þér á eftir farandi bréf til fjöltengissins, þar sem ég kemst ekki á MSN:
Góðan daginn
Ég er hér mjög óánægður internetnotandi hjá “fjöltenginu” sem hefur það í hyggju að kvarta…bara þessar ósköp venjulegar kvartanir eins og af hverju það er ekki möguleiki að gera tvennt í einu án þess að netið detti út, af hverju það er ekki hægt að vera á netinu nema í átta mínútur í einu, að maður komist ekki á netið nema þegar það er í stuði eða af hverju MSN virkar nánast aldrei í fyrstu tilraun eða af hverju þetta net virkar yfir höfuð ekki sem skildi! Maður er hérna að borga fleiri þúsund krónur fyrir drasl! Annað hvort vil ég að þið gjörsamlega breytið algjörlega uppsetninguna hjá þessu drasli ykkar eða þá að þið aftur kallið þetta sem galla vöru sem kostar alltof mikið.
Þætti mér líka vænt um að fá að vita hvernig ég get sagt þessu drasli upp. Hvort að ég geti bara hent módeminu í ruslið, þar sem það virkar ekki eða þá að ég þurfi að keyra með þetta alla leiðina lengst upp í rassgat.
kv.
einn ákaflega þreyttur á þessu ömurlega interneti ykkar