Þetta er spurning sem er ekki hægt að svara, því ef einhver trúir virkilega á guð þá er guð til fyrir honum, alveg eins með þá sem trúa á drauga, ef þú trúir að þeir séu til þá eru þeir til. Bæði eru þetta hlutir sem aldrei mun fást staðfest hvort raunverulega séu til, en eins og áður segir þá er hægt að “búa” þetta til fyrir sér með því að trúa á þá. Sjálfur er ég ekki trúaður, Trúin var fundin upp til að hafa stjórn á stórum hópum af fólki, auk þess sem það er mannlegt eðli að vilja vita allt um allt og trúin gaf þér það hér áður fyrr, menn sem sköpuðu hverja trú bjuggu til svör við öllu á jörðinni sem ekki var hægt að skýra á þeim tímum, sbr hvernin jörðin varð til, hvernin við urðum til, dýrin og sfrv. Hlutir sem þú getur fundið í öllum trúarbrögðum.
þó segi ég það að það er ekkert að því að trúa smá, trúin getur gert góða hluti fyrir þá sem nota hana rétt, það að biðja er hluti af sáluhjálp því með því að biðja um eitthvað ertu að viðurkenna vandamál þitt og getur því unnið í því :D
Mín skoðun er ALLTAF sú rétta