* Fólk sem reynir að afsanna trúarbrögð með tilvitnunum í hina og þessa vísindamenn.
* Fólk sem reynir að afsanna vísindi með tilvitnunum í hin og þessi trúarrit.

Það er ekki að ég er sammála eða ósammála öðrum hvorum hópnum, heldur vegna þess að fyrir mér eru þau rifrildi sem blossa upp á milli þessara tveggja hópa í rauninni lítið annað en endurtekning á því sem hefur verið rifist um öldunum saman. Þessum rifrildum mun líklegast ekki linna fyrr en annar hópurinn útrýmir hinum, eða þá að allir aðilar innan beggja hópa haldi kjafti.

Bæði virkar fyrir mig, en þangað til, þá vil ég koma fram beiðni til þeirra sem halda þessum rifrildum uppi hér á Huga um að hætta þessum leiðindum. Hingað til hefur nefnilega ekkert hafist upp úr þeim.

“Trúarbrögð gegn vísindunum” eru með leiðinlegustu umræðuefnum sem til eru, ásamt umræðum um rasisma og meðalstærð karlprýða.