Fólkið hérna er farið að fara svo mikið í taugarnar á mér að ég nenni þessu ekki lengur. Hugi var skemmtilegur hérna áður fyrr, en hann er búinn að leysast upp í endalaust nöldur, kvabb, kvein og rifrildi með hundleiðinlegum fleimurum út um allt.
Hahahaha… þið eruð nú ekkert skildugir til að fylgjast með þessu. Má ekki krydda upp á þetta helvíti? Ég skil ekki hvað allir eru að nöldra yfir fólki sem á sér ekkert líf og hengur á huga og stofnar einhver bull félög og bullar á korkum, ég veit ekki alveg hvort er meira sorlegra að röfla um þetta fólk sem bullar á forsíðunni eða öfugt. það er ekki eins og þið þurfið að fylgjast með því eða láta það fara í taugarnar á ykkur, það fer nú ekki það mikið fyrir þessu.. nema kannski á forsíðunni. Allavena mundi ég ekki nenna að láta það fara í taugarnar á mér því þetta á hvort sem er ekkert eftir að lagast.
Já reyndar.. En eins og ég sagði, það á hvort sem er ekkert eftir að breytast þannig ég mundi ekki nenna að eyða tilgangslausum tíma í að röfla um þetta :)
Ég er alveg sammála þér að gullöld Huga sé liðin. Þetta var mjög gaman um tíma og skemmtilegt samfélag varð til en datt svo niður hægt og þétt. Kannski maður fari bara sjálfur að hætta þessu.
Annars vil ég þakka þér fyrir samveruna hérna inni, þó svo að ég muni ekkert sérstaklega eftir samtölum okkar. ;)
já, ég man þegar Mal3 og fleiri voru hérna. Þá voru samræðurnar hérna vitsmunalegar en núna er þetta eins og samtal af msn hjá einhverjum gelgjum. Sem betur fer höldum við okkar áhugamálum eins og Kvikmyndir og Sagnfræði og fleiri.
Ekkert að rifrildum það er að segja ef þau eru um einhver gáfuð málefni. Þetta er farið út í bull þegar einhver korkur fer í heitar umræður af því sumum finnst Pepsi betra enn kók(það er mjög fyrirsjáanlegt að einhver eigi eftir að svara þessu svari með einhverju líku).
Enn já síðan eru það málin um alla sem eru að nöldra, ef litið er á nöldur korkinn er ekkert raunverulegt nöldur. Fólk er bara tala þarna um hvernig því er kalt enn nennir ekki að kveikja á ofni eða einhverju því um líkt. Ég held það hafi komið um 3 eða 4 korkar á 1 degi um hvað fólki er kalt á tánum.
Og síðan eru það fleimararnir, “Metallica sökkar”. Þarna ertu kominn með hálfan huga á móti þér, 1/4 hlutlausan og 1/4 sem segir “true”.
Sjálfum finnst mér nú verst bullið, allt í lagi smá bull enn allt er gott í hófi. Og það er bullið hér svo aldeilis ekki. Þetta er ekki einu sinni fyndið lengur.
“Ha ertu að segja mamma þín sé búin til úr kæfu?” “Nei hún borðaði lambasteik með konungi ljónanna” “Ha ertu ekki að tala um gangstétt?”
Þetta er allt eitthver svona steypa. Og já hann er á niðurleið, það er varla hægt að vera alvarlegur lengur og síðan er enginn leið að sjá hverjir eru að vera alvarlegir og hverjir eru bara eitthvað að rugla.
Hugi hefur alltaf verið eins það eru bara fleiri ungir krakkar að verða tölvuvæddir (ehh… komast allavegana á MSN og huga). Þú ættir ekki að gefast upp, taka þig bara til og skikka hugara til ;)
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..