Venjulegar kjötbollur eru ágætar, en kjötfarsbollur eru viðbjóður. Það var einmitt svoleiðis í matinn hjá mér núna. Mér finnst ég alltaf vera að borða hlaup með kjötbragði þegar ég sting þessu upp í mig. Bara tilhugsunin fær mig til að vilja skyrpa þessu út úr mér. Ekki einu sinni kartöflur, grænar baunir og rauðkál gátu bjargað þessu.