Reyndar færð þú það sem þú óskar þér. Stofnuð verður ný talmálsrás á 94,3 og því eru nú samtals tvær talmáls rásir á Íslandi. Hin er einkarekin og maður spyr sig hvort eini tilgangur þessarar nýju talmálsrásar sé að gera þessa einkareknu gjaldþrota. Í ljósi þess að norðurljós hafa reynt talmálsstöð áður og að þessi einkarekna eru leifar norðurljósastöðvarinnar sem fór á hausinn finnst mér ýmis legt benda til að svo sé.