… allir Hugarar myndu hittast á einhverjum opinberum stað og tala saman yfir kaffibolla…
Skuggi85 upp á borði að skipuleggja nýtt Ísland…
Tonks og fantasia að dansa pólka á brennandi bókum…
Anon væri að spá í kaffibollan sinn og þefa af afturendanum á fólki í leit af geimverum…
PeepingTom að gera félagsfræðilegar tilraunir á konum með því, m.a., að skoða viðbrögð fólks við því þegar hann smyr smjöri á bringuna á sér…
BudIcer að éta múmínálfakex…
Gaddavir að reyna að brosa en tekst það ekki svo hann byrjar að teikna broskalla…
Siggikorn uppgötvar eftir miklar rannsóknir að það á enginn annar afmæli en hann 2. september…
CyberIdiot að dreifa biblíutextum með Sirju sem meðhjálpara…
JReykdal að reyna finna upp á einhverju sniðugu fyrir eldvegginn sinn, en tekst ekki svo hann reynir að skrifa í bloggið sitt, en text ekki….
Duff reynir að sannreyna kenningu sína um að blóð einhvers annars myndi líta vel út á skyrtuni hans, en uppgötvar að hann mætti í rúllukragabol….
xxvillimeyxx mætir á staðinn með sykurfrauð, öllum til mikillar ánægju.
Dulspekiteymið uppgötvar dularfulla tyggjóklessu undir borðinu og hefur tafarlaust rannsóknir…
Haukzi talar óskiljanlega… enda með munninn fullan af nananas…
… og eitthvað fleira…
Hvað haldið þið?
Nírg!