Á mánudaginn var lenti ég í því að vera að hlusta á Skonrokk í góðum fíling og þá kom eitt ömurlegasta lag sem ég hef á ævinni heyrt, þetta var íslenskt lag og fjallaði um nornir og að fljúga hærra og eitthverja svoleiðis drullu.
Nema hvað, ég er búinn að vera með þetta ógeðslega lag á heilanum síðan ég heyrði það og sama hvernig ég reyni, þetta bergmálar í hausun á mér.
Maður hefði nú haldið að eina almennilega útvarpsstöðin á Íslandi myndi hlífa hlustendum sínum við svona löguðu.
Ef einhver kann að ná ógeðslega leiðinlegum lögum af heilanum á sér þá má hann kenna mér hvernig það er gert.