Þú mátt verða formaður bandóðra villikvenna-klúbbsins.
Bandóðar Villikonur- Komast sjálfkrafa á lista yfir meðlimi.
- Eru Bandóðar.
- Fá 1.3% skattaafslátt.
- Hafa ekkert að gera með Villa.
- Eru hinsvegar mjög villtar.
Bandóðar Villikonur hafa í aldanna rás verið mjög pirrandi á spjallsíðum internetsins. Þær skríða um eins og snákar á eftir bráð sinni og svífast einskis. Þær eru ekki nógu gáfaðar til að kveikja á MSN eða irkinu og eru því taldar flestallar ljóshærðar. Sumar eru þó dökk/rauðhærðar, en það gerir ekkert til.
Um KlúbbinnBandóðar Villikonur voru, fyrir 1998 einangraðar frá heiminum. Þær áttu sér engan samastað og enginn vildi sjá þær. Það var ekki fyrr en þær stofnuðu klúbbinn að þær sáu sína líka og gátu verið pirrandi við hvora aðra. Klúbburinn er einhver sá fátækasti sem heimurinn þekkir, enda notast þær einungis við ókeypis þjónustu á internetinu. Einnig fá þær 1.3% frádrátt frá skatti og til að virkja það skal fylgja
þessum leiðbeiningum.
Ef einhverjum finnst þessi lýsing passa við sig þá skal hann hafa samband við formann klúbbsins. Ég vil ekkert hafa með þetta að gera og ef þú biður mig um að fá að komast í hann þá pissa ég uppí þig. Formaður klúbbsins hefur ekkert um það að segja hvort hún sé í klúbbnum eða ekki, hún hefur átómatískt verið dæmd af mér til þess að þjóna íslenska villikvenna sambandinu og getur ekkert gert í því.