Tja, ég er nú svolítið hrædd um að geðsjúklingurinn Bush fari með herinn úr landi eftir að við tökum hrókinn að okkur. Hann er alltaf á nippinu, talandi um einhver efnavopn í Írak og vaxandi ógn af Kóreu-mönnum. Mér virðist þó Kóreu menn ekkert vera að kræla á sér, sitja eflaust í einhverju skúmaskoti og leggja kapal eins og ‘eðlilegar’ þjóðir.
Þó veit ég ekki hvað skal segja, auðvitað finnst mér gott að Bobby komi. Getur hann ekki kennt krökkunum skák svo þau hangi ekki alltaf fyrir framan Counter-Strike eða Half Life.