Ég er með ágæta aðferð til þess að fá alltaf 10 tíma svefn. Margir hafa prófað þessa aðferð og flestir segja að hún virki. Farðu að sofa 10 tímum áður en þú þarft að vakna. Láttu okkur svo vita hvernig þetta gengur.
en vissuð þið að ísland er með vitlausa klukku? þegar við erum að mæta í skólann átta á morgnana, þá er klukkan í raun og veru sex :S einhver ákvað bara að við skyldum vera með þennann tíma sem við erum með í dag, í staðinn fyrir þann rétta samkvæmt staðsetningu……
ég er ekki að ljúga í þig… Landafræðikennarinn minn var a segja mér þetta og hann er alger proffi og var með heimildir fyrir þessu og allt…. það er ótrúlegt hvað við lifum í mikilli lygi…;)
Þetta er afþví að við erum með sama tíma og London en erum á ALLT öðrum stað varðandi sólina og allt það vesen miðan við London.. Ég lærði þetta líka einhvern tímann í Jarðfræði.. Og þar lærði ég líka að það ætti að vera 2min (held ég) munur á Egilstöðum og Ísafirði :)
Þetta er auðvitað bara annað tæki sem stjórnvöld nota til að kúga okkur. Það er verið að svipta okkur svefni svo að það sé auðveldara að stjórna okkur…
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..