Eitt sem mér finnst náttúrulega vera alveg glatað er það að langflestir kennarar eru ósáttir við það þegar að einhver nemandi er með húfu á sér inni í skólanum. Hvað er svona slæmt við þetta ? Ef manni er t.d. kalt á hausnum, þá má maður ekki vera með húfu ? Manni verður 70% kaldara ef maður verndar ekki hausinn með t.d. húfum. Svo á maður ekki að vera með húfur því þetta á að “ergja” aðra. WTF ?! Hvernig á það að ergja mann ef að maður er með húfu ? Þetta er bara hálfvitalegt af þessum kennurum að gera svona.

Gleðileg Jól…