Þetta er ekki á forsíðunni. Það er vegna þess að þetta er leyndarmál. Það er ekki hlekkur inn á þessa umsókn neinstaðar á Huga lengur tja… nema núna á þessum korki.
Umsóknin er eins og sjá má enn til. Hlekknum á hana var hins vegar lokað fyrir eitthvað ári síðan. Það var lokað fyrir allar adminumsóknir.
Annars var það orðið þannig, þegar enn var opið fyrir adminumsóknir, og hlekkur var hérna lengsta niðri til vinstri á forsíðunni, að menn voru hættir að taka mikið tillit til skilyrðinna. Það var allavegna orðið ansi mikið af undanþágum. Svo það sakar ekki að reyna.